Söngkeppni Samfés 2026

Söngkeppni Samfés verður haldin í Laugardalshöll laugardaginn 9. maí n.k, kl. 14:00.
Félagsmiðstöðin Skjólið er eitt af þeim atriðum sem komust áfram í keppnina og eru þau atriði nr. 13 á svið.
Undirbúningur lagsins hefur verið leiddur af Tónlistarskóla A.-Hún. í samstarfi við unglinga frá félagsmiðstöðvunum Skjólinu á Blönduósi og Undirheimum á Skagaströnd. 
 
Hljómsveitina skipa: Sigrún Erla Snorradóttir söngkona, Aníta Ýr Gunnarsdóttir hljómborð, Ísak Andri Jónsson bassa, Jón Benedikt Tischleder Jensson trommur og Sigurjón Ýmir Alexson gítar. Þau eru öll nemendur við skólann.
 
Við hvetjum öll til að horfa á beina útsendingu á RÚV kl.14 næstkomandi laugardag!