Minning um Stefán Jónasson fyrrverandi kennara við skólann

Stefán Jónasson á góðri stundu.
Stefán Jónasson á góðri stundu.

Stefán Jónasson fyrrverandi kennari við skólann er látinn. Við fráfall Stefáns langar okkur sem með honum störfuðum við Tónlistarskóla A.-Húnavatnssýslu að minnast hans í fáum orðum og þakka honum fyrir störf hans og framlag til skólans.

Stefán hóf störf við skólann árið 1995 og starfaði þar í tvo áratugi, allt til ársins 2015. Hann kenndi á píanó, blokkflautu og harmonikku og lagði sitt af mörkum til tónlistaruppeldis nemenda sinna. Stefán var rólegur, nákvæmur og samviskusamur í störfum sínum. Hann sinnti einnig skipulagi og umhirðu píanónótnasafns skólans af mikilli alúð og natni og kom því í einstaklega gott horf. Sú vinna hefur nýst skólanum vel og er fallegur vitnisburður um vandvirkni hans og framlag til skólastarfsins.

Við minnumst Stefáns með hlýhug og þakklæti fyrir störf hans í þágu tónlistarskólans og sendum fjölskyldu hans og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.

Fyrir hönd Tónlistarskóla A.-Húnavatnssýslu,

Hugrún Sif Hallgrímsdóttir skólastjóri