Á dögunum bættust þrír nemendur í hóp þeirra sem lokið hafa áfangaprófi sem er hluti af prófakerfi tónlistarskólanna á Íslandi. Að þessu sinni voru það Hrafnhildur Elsa, Kai Elías og Aníta Ýr sem öll luku við grunnpróf á hljóðfærin sín. Hrafnhildur lék á þverflautu, Kai á trompet og Aníta á píanó. Nemendurnir stóðu sig öll með miklum sóma og hafa þar með náð mikilvægum áfanga í tónlistarnáminu sínu. Innilega til hamingju öll með árangurinn!
|
Túnbraut 1-3 | 545 Skagaströnd Sími á skrifstofu: 455 2700 Netfang: tonlistarskoli@skagastrond.is |
Skrifstofa skólans er opin eftir samkomulagi. Fyrirspurnum skal beint á tonlistarskoli@skagastrond.is. |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda
á netfang skólans tonlistarskoli@skagastrond.is eða til viðkomandi kennara.