Forföll

Ef nemandi forfallast ber honum að hafa samband við kennara eða skrifstofu og láta vita. Að gefnu tilefni þarf að taka fram að ef nemandi getur einhverra hluta vegna ekki mætt í sína tíma, getur skólinn ekki bætt þá upp.

Ef kennari veikist og tími fellur niður er reynt að ná sambandi við heimili nemandans til að koma í veg fyrir óþarfa ferð.

Ekki er skylt að bæta upp einstaka kennslustundir sem falla niður vegna veikinda kennara. Sé kennari forfallaður í hálfan mánuð samfleytt útvegar skólinn annan kennara eða bætir upp þær kennslustundir sem hafa tapast.

Mætingar
Nemanda ber að mæta stundvíslega í allar kennslustundir. Fjarvistir og ástæður fyrir þeim skulu tilkynntar viðkomandi kennara eða skrifstofu. 

Umgengni
Nemendur skulu ganga vel um eigur skólans, fara úr skóm í anddyri og hengja yfirhafnir á snaga.