Viðtal á Rás 1

Rás 1 kom á dögunum í heimsókn til okkar í þeim tilgangi að spjalla um tónlistarskólann okkar, tónlistarlíf í sýslunni og fleira sem viðkemur málefninu.

Í viðtalinu er rætt um starfsemi skólans, hlutverk tónlistarnáms í samfélaginu og hvernig tónlistarlífið í héraðinu hefur þróast á undanförnum árum.

 Viðtalið verður flutt miðvikudaginn 11. mars kl. 13.00 í þættinum Víðsvegar á Rás 1.

 Við hvetjum alla áhugasama til að stilla á þáttinn og hlusta.