Við erum að leita að söngkennara!

Tónlistarskóli A.-Hún. auglýsir laust til umsóknar 31% starf söngkennara frá 1. janúar 2027. Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum söngkennara til liðs við öflugan og fjölbreyttan tónlistarskóla. Kennsla fer fram á Blönduósi að mestu í litlum hópum þar sem áhersla er lögð á sönggleði, raddþjálfun, tónlistarþroska og að mæta nemendum á þeirra forsendum. Nánari upplýsingar fást hjá skólastjóra.