Nýverið fóru fram tveir tónfundir í kennslustofum skólans þar sem nemendur fluttu tónlist fyrir samnemendur og foreldra. Dagskráin gaf áheyrendum innsýn í þá vinnu sem nemendur hafa unnið að á síðustu vikum.
Á tónfundi fær nemandi tækifæri til að koma fram og sýna afrakstur æfinga sinna í minna og öruggara umhverfi en á hefðbundnum tónleikum. Tónfundir eru því gott tækifæri, sér í lagi fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref, til að byggja upp sjálfstraust og öðlast reynslu af sviðsframkomu. Þeir skapa því gott lærdómsumhverfi fyrir nemendur.
Því miður láðist okkur að taka myndir af öllum nemendum á fyrri tónfundi okkar og værum glöð að fá sendar fleiri myndir ef einhver lumar á þeim.
|
Túnbraut 1-3 | 545 Skagaströnd Sími á skrifstofu: 455 2700 Netfang: tonlistarskoli@skagastrond.is |
Skrifstofa skólans er opin eftir samkomulagi. Fyrirspurnum skal beint á tonlistarskoli@skagastrond.is. |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda
á netfang skólans tonlistarskoli@skagastrond.is eða til viðkomandi kennara.