Tilkynning vegna Tónvisku

TónViska, skráningar- og upplýsingakerfi tónlistarskólans, er því miður óaðgengileg um þessar mundir vegna netárásar á hýsingaraðila kerfisins. Ekki er ljóst á þessari stundu hvenær það verður aðgengilegt á ný.
 
Þetta kann að hafa áhrif á upplýsingagjöf og samskipti skólans við foreldra og forráðamenn og er til að mynda ekki hægt að senda fjölpóst til nemenda skólans eða nálgast netföng og upplýsingar varðandi nemendur skólans.
 
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda