Á dögunum barst Tónlistarskóla A.-Hún. einstaklega góð og kærkomin gjöf þegar Minningarsjóður hjónanna frá Garði og Vindhæli gaf skólanum rafmagnspíanó ásamt píanóstól.
Gjöfin kemur sér afar vel fyrir skólann og mun nýtast vel í kennslu og öðru tónlistarstarfi innan hans. Tónlistarskóli A.-Hún. færir Minningarsjóðnum innilegar þakkir.
Á myndinni leikur Anna Lísebet, píanónemandi við skólann, á nýja hljóðfærið.
|
Túnbraut 1-3 | 545 Skagaströnd Sími á skrifstofu: 455 2700 Netfang: tonlistarskoli@skagastrond.is |
Skrifstofa skólans er opin eftir samkomulagi. Fyrirspurnum skal beint á tonlistarskoli@skagastrond.is. |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda
skal senda á netfang skólans tonlistarskoli@skagastrond.is eða til viðkomandi kennara.