Samstarf grunnskóla og tónlistarskóla er ekki bara mikilvægt fyrir okkur í tónlistarskólanum heldur líka ómetanlegt fyrir velferð nemenda okkar. Í dag fengum við fallega áminningu um hversu heppin við erum með skólana okkar, þar sem allir hjálpast að þrátt fyrir að í mörg horn sé að líta.
Í hvassviðri dagsins lagði Haddý skólaliði á sig að ganga með yngstu nemendum grunnskólans yfir í tónlistarskólann í hverri kennslustund til að tryggja að þau kæmust örugg í tímana sína. Slík umhyggja og ábyrgð endurspeglar svo sannarlega vilja starfsfólks til að stuðla að góðu og farsælu samstarfi.
Það er einmitt svona samvinna sem skapar sterkt og styðjandi námsumhverfi þar sem börnin okkar geta blómstrað.
|
Túnbraut 1-3 | 545 Skagaströnd Sími á skrifstofu: 455 2700 Netfang: tonlistarskoli@skagastrond.is |
Skrifstofa skólans er opin eftir samkomulagi. Fyrirspurnum skal beint á tonlistarskoli@skagastrond.is. |
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda
á netfang skólans tonlistarskoli@skagastrond.is eða til viðkomandi kennara.