150 ára afmæli Blönduóss

Á laugardaginn síðastliðinn var haldin hátíðarsamkoma í Félagsheimilinu á Blönduósi í tilefni þess að 150 ár eru liðin frá upphafi verslunar á staðnum. Upphaf verslunar markaði tímamót í sögu byggðarinnar og lagði grunninn að þróun Blönduóss sem verslunar-, þjónustu- og síðar stjórnsýslukjarna fyrir Húnavatnssýslur.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, var heiðursgestur samkomunnar og á dagskrá voru ávörp og tónlist. Í tengslum við hátíðarhöldin var einnig efnt til afhjúpunar minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur.

Tónlistarskóli A.-Húnavatnssýslu átti þrjá fulltrúa á samkomunni. Hrafnhildur Elsa Pálmadóttir lék á þverflautu og Guðjón Abem Guðjónsson á saxófón. Louise Price, kennarinn þeirra, kom fram ásamt þeim.

Við erum auðvitað mjög montin af nemendum okkar og því starfi sem þau og Louise, kennarinn þeirra, vinna saman. Á samkomum sem þessum öðlast nemendur okkar dýrmæta reynslu af því að koma fram og íbúar og aðrir gestir fá um leið örlitla innsýn í starfið okkar.